Við leitum að áreiðanlegum, skipulögðum og vandvirkum liðsfélaga til að styrkja vöruhúsateymi Nox Medical. Í þessu hlutverki mun þú sjá um móttöku, skráningu, pökkun og meðhöndlun á vörum, auk þess að taka saman og afgreiða sendingar til viðskiptavina okkar um allan heim.
Nox Medical er leiðandi fyrirtæki á alþjóðavísu í þróun og framleiðslu á lækningartækjum til þess að greina svefnsjúkdóma. Unnið er samkvæmt ítarlegu gæðakerfi á öllum sviðum, þar sem nákvæmni og fagmennska er í fyrirrúmi.
Hæfnis- og menntunarkröfur:
Umsóknir, ásamt ferilskrá og kynningarbréfi, mega vera á íslensku eða ensku. Kostur er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Við höfum áhuga á hæfileikaríku fólki sem deilir ástríðu okkar fyrir að bæta líf fólks. Nox Medical fagnar fjölbreytileika. Við teljum að grunnurinn að kraftmikilli frumkvöðla starfsemi felist í sanngjörnu og inngildandi vinnuumhverfi. Menning fyrirtækisins okkar byggist á því að leiða saman ólíkar hugmyndir og einstaklinga til að hvetja til nýsköpunnar og samvinnu.
Manufacturing
Reykjavík, Iceland
Share on: